sun. 18.3.2007
Eiríkur Hauksson
Horfði á myndbandið við framlag okkar í Evróvision í kvöld. Fannst það betra en fyrst þegar ég sá það en hvert fór gítarsólóið? Á kannski bara að tefla því fram á sviðinu? Eiríkur er svakalega flottur þarna þó jarpur sé en ekki rauður. Mikil tilfinning og mikil karlmennska á ferðinni. Held við hljótum að hafa það upp úr forkeppninni að þessu sinni. Ef einhverjum tekst það þá tekst Eiríki það. Jafn getnaðarlegur og hann er þarna í hráu umhverfinu verður hann ekki síður töff á sviðinu með rautt faxið flaxandi og tilfinninguna í lagi. Með gítarsólói TAKK.
Athugasemdir
;-) já finnst þér Eiríkur "getnaðarlegur" ;-) ég þarf að sjá þetta, hef ekki séð myndbandið... hva! er þetta þá í 3ja skiptið sem Eiríkur keppir í Eurovision ... fyrst fyrir Ísland, síðan Norge og svo Ísland aftur. Kannski Norðmenn standi þá með okkur og kjósi Eirík....gott mál!!! Áfram Ísland!!!
G Antonia, 18.3.2007 kl. 02:00
Ekkert smá.
Það væri gott fyrir okkur ef Norðmenn standa með okkur en líka EINS GOTT fyrir þá
...........
Vilborg Traustadóttir, 18.3.2007 kl. 03:12
var búin að heyra mikið um rauða hárið í útvarpi en sá svo í gær þegar ég sá myndbandið hvað alvarlegt mál
....ég treysti því að hann verði orðinn rauður aftur gæðingurinn og mæti með gítarsólóið og alla flottu strákana með sér í keppnina
....og munu þá evrópskar ungmeyjar (já við erum þar á meðal) keppast við að kjósa strákana okkar ........
Herdís Sigurjónsdóttir, 18.3.2007 kl. 14:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.