En vissi þó......

 

Eittthvað

úti í óvissunni

ákaft skín.

 

Bylgjar sig

og brosir, brosir

blítt til mín.

 

Þetta eitthvað

undarlega

að mér hló.

 

Ég vissi ekki

hvað það var

en vissi þó….

 

    Höf:  Vilborg Traustadóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: G Antonia

maður kemur ekki að "tómum kofanum" hér elskan, alltaf gaman að kíkja hingað og lesa fallegar ljóðlínur og góðar fréttir.is  laugardagsknús

G Antonia, 17.3.2007 kl. 15:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband