lau. 17.3.2007
Bloggvinur Emil
Ég reyndi að ala Emil upp "í guðsótta og góðum siðum" frá því hann var fjögurra ára gamall. Hann fylgdi ókeypis með pabba sínum þegar við tókum saman. Emil og Ingi eru fóstursynir mannsins míns og fyrrverandi eiginkonu hans. Ingi flutti með mömmu sinni til Svíþjóðar. Ég á Trausta Veigar fyrir en hann er ári eldri en Emil. Við Geir eignuðumst svo tvo drengi á færibandi eða með eins árs og þriggja daga millibili, Geir Fannar 1983 og Kristján Þór 1984. Vinkona mín hitti Emil niðri í bæ á Siglufirði þegar ég var á spítalanum að eiga Kristján Þór. Þá var Emil 6 ára. Hún spurði hann eitthvað eftir mér þá sagði Emil það verður nú bara að fara að setja rennilás á magann á henni, hún er alltaf að eiga börn
. Emil er giftur henni Immu sinni og búa þau suður með sjó
. Velkomin hingað Emil og mundu bara að þunn er stjúpmóður sneiðin.



Athugasemdir
Gaman að fá tækifæri til að fylgjast með þér Emil á blogginu...ég man vel eftir því hvað þú varst mikill grallari á Laugarveginum...voru það ekki þið bræður sem selduð gömlu morgunblöðin...hef alltaf hrifist af einkaframtakinu og fannst þið óborganlegir
Ég man nú líka þegar Geir Fannar var skírður og konan hélt að hann hefði verið skírður Geir Annar og þótti það full mikið Egóflipp pabbans 
Herdís Sigurjónsdóttir, 18.3.2007 kl. 14:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.