Þarna

 

Ég var þarna

og dansaði

minn dauðadans.

 

Með bros á vör

því ég vissi ekki

að danshöfundurinn

vildi sál mína,

líf mitt allt

og ástvina minna.

 

Bros mitt stirðnaði

í kuldagjóstrinum

og hönd mín leitaði

að stýripinnanum.

 

Á elleftu stundu.

 

Þegar sársaukinn magnaðist

vaknaði vitund mín

til fulls.

 

Í birtu komandi daga

dansa ég framandi dans

við fólkið mitt.

 

 

   Höf: Vilborg Traustadóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband