X-Faktor

Verð bara að segja það að hún Ellý ber af dómurunum í X-Faktornum.  Hún er samkvæm sjálfri sér og mér finnst hún vera sú eina sem þorir að segja eins og henni finnst.  Jafnvel meðan salurinn púar á það sem hún segir um keppendur skynjar maður sannleikann hjá henni. Sigga Beinteins tjáði sig um að hún væri ekki ánægð með "þá sem tók við af henni."  Bíddu Sigga var dómari í Idol!  Mér finnst stundum bæði Einar og Palli leggja hana í einelti og að Sigga hafi gefið "veiðileyfið".  Áfram Ellý þú ert flottust...Cool

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: G Antonia

Ellý var allavega góð í kvöld og sagði nákvæmlega það sem mér fannst amk. Hún er líka "töff" ......Einar var miklu betri þegar hann var í Idolinu, og Palli er Palli og verður alltaf Palli... segir það sem honum býr í brjósti og meira en aðrir þyrðu að leggja sér í munn, en hann kemst upp með það! Ég kann vel við hann líka......... og í kvöld fannst mér Gís og Guðbjörg best ... síðan Jogvan.. þar næst Hara og Inga rak lestina og fór heim ... þannig að ég var sátt eftir þetta kvöld og kaus "rétt".. Góða helgi Vilborg mín..

G Antonia, 17.3.2007 kl. 00:23

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Sömuleiðis Guðbjörg. Sammála þér varðandi röð keppanda. Kaus Guðbjörgu (fyrsta skipti sem ég kýs í X-Faktor).  Hefði ekki viljað sjá alla keppendur Ellýjar fara fyrir lokahrinunu.

Vilborg Traustadóttir, 17.3.2007 kl. 00:39

3 Smámynd: Jens Guð

  Ég fylgist með X-factor vegna þess að færeyskt dagblað,  Tíðindablaðið Sosialurin,  samdi við mig um að gefa þeim skýrslu af frammistöðu Jógvans.  Mér þykir músíkin í X-factor svo leiðinleg að ég hef lengst af fylgst með þættinum með slökkt á talinu.  Þess vegna veit ég lítið um það sem dómarar segja.  Ég er þó meðvitaður um að Páll Óskar hefur af dómurunum bestu þekkingu á söng.  Einar Bárðar hefur að einhverju marki næmleika fyrir því hvað virkar.  Ég set spruningamerki við Ellý.  Ég hafði alltaf gaman að Q4U.  Pönkhljómsveit sem gekk í endurnýjun lífdaga.  Þar fyrir utan var og er hljómborðsleikarinn,  Árni Daníel, góður vinur minn.  Líka bassaleikarinn,  Gunnþór Sigurðsson.  Ellý kom ágætlega út sem söngkona Q4U en ég set spurningarmerki við yfirsýn hennar á söng í samhengi við X-factor. 

  Þó að ég fylgist með X-factor með slökkt á tali þá spái ég Jógvani góðu gengi fram að lokaþætti.

Jens Guð, 17.3.2007 kl. 03:30

4 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Já Palli hefur greinilega góða söngmenntun og þekkingu á því sviði.  Enda komust hans hópar best út.  Hann fer með "fullt" hús í lokaslaginn.  Mér leiðist bara svoo þegar talað er "niður" til fólks í beinni. Samt, fólk skýtur sjálft sig bara niður með því....Ellý stendur sig.......en það mæðir mikið á henni. Hún er með bæði Palla og EB á bakinu.  Fyrir nú utan veiðileyfið frá Siggu Beinteins.

Vilborg Traustadóttir, 17.3.2007 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband