Hversu oft

 

Hversu oft

gekk ég þar hjá

á húmsins hljóðu stund

sem skarninu var hent

og fíflinu á foræðið

att?

 

Hversu oft?

 

Hversu lengi

lét ég mig litlu skipta

öll látalætin?

 

Hversu sjaldan

sá ég grátbólgin augu trúðsins?

sem hélt hita á sálinni

með holum hlátri

uns yfir lauk.

 

Hversu fegin

losa ég um fjötrana

og held fagnandi í átt

að yfirborðinu?

 

  

 Höf:  Vilborg Traustadóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Bjarnason

Takk fyrir þetta

Ragnar Bjarnason, 16.3.2007 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband