Leit

 

Þegar þú þekkir

ekki lífið

leitar þú þess

sem þú óskar

í glaumi, drykkju

og dansi.

 

Þú leitar einhvers

sem er ófundið.

 

Aldrei

situr neitt eftir.

Því leiðin sem þú ferð,

leiðin sem þú velur

er vitlaus.

 

Þín innri þrá og þorsti

viðurkenna ekki

vímugjafa

og í hjarta þínu

er dulin ósk

óuppfyllt.

 

 

    Höf:  Vilborg Traustadóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband