Hugsaðu til mín

 

Hugsaðu til mín

þegar húmar að.

Þegar nóttin lengist

og veður kólnar.

Ég ylja.

 

Hugsaðu til mín

þegar hjarta þitt grætur

og sárum veldur

sorgarskýjum.

Ég lækna.

 

Hugsaðu til mín

þegar víxill fellur

á varnarlausan

sakleysingja.

Ég borga.

 

Hugsaðu til mín

þegar sverfur að.

Þegar hrynur veröld

hárra drauma.

Ég endurreisi.

 

 

    Höf: Vilborg Traustadóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Eggertsdóttir

Takk fyrir þetta "Næturdrottning". Mjög fallegt.

Vilborg Eggertsdóttir, 15.3.2007 kl. 02:05

2 Smámynd: G Antonia

Já þetta finnst mér fallegt líka
góðan dag í dag! og hvernig gengur annars ?
fimmtudagsknús til þín

G Antonia, 15.3.2007 kl. 12:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband