Bloggvinkona G Antonía

Nýjasta bloggvinkonan Guðbjörg Antonía tilheyrir svokölluðum flokki manna er nefnast í daglegu tali “Póllandsfarar”.  Þetta er undarlegur hópur manna (aðallega kvenna enn sem komið er) sem aðhyllist hina ægilegu stólpípumeðferð doktor Borisar!  Stólpípumeðferð þessi hefur verið mjög til umfjöllunar hérlendis eftir að “Póllandsfarar” flykktust um Jónínu Benediktsdóttur og héldu utan í þessum varfasömu erindum.  Undirflokkar þessarar tegundar manna nefnast gjarnan, janúarhópur, febrúarhópur og svo væntanlega þannig áfram koll af kolli.  Þessi einfalda flokkun hefur nú þegar fallið um sjálfa sig þar sem ekki er unnt að skilgreina Guðbjörgu í öðrum hvorum hópnum.  Hún tilheyrir nefnilega BÁÐUM.  Kallar þessi kynlega hegðun Guðbjargar á tafarlausa endurskipulagningu og rannsóknir á atferli hópanna.  Svo mikil ringulreið hefur skapast með þessu útspili Guðbjargar að undirrituð og önnur til hafa þegar fest sér ferð með “septemberhópnum”.  Líklegt þykir að Guðbjörg muni einnig tilheyra þeim hópi og munu þá frekari tilraunir til að greina hegðun hópanna væntanlega leggjast alveg af. Guðbjörg er vænlegur kostur sem bloggvinkona, jákvæð, einlæg, falleg að innan sem utan og umfram allt dugleg að blogga.Cool

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: G Antonia

 gerði mér ekki grein fyrir að ég væri að "skemmaleggja" Póllands-batteríið Vilborg mín, of eða van...... það er "soldið" ég !!!  en annars takk fyrir falleg orð til (um mig) mín!
yours truly

G Antonia, 15.3.2007 kl. 00:29

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Verður bara meira gaman í september hjá okkur fyrir vikið;)

Vilborg Traustadóttir, 15.3.2007 kl. 00:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband