Eina nótt.

 

Þrá og mildi

eftir skildi

ágústnótt.

Hvíslað forðum

ástarorðum

undur hljótt.

 

Dró á mála

ungra sála

eymsli sár

og í laumi

lak í taumi

lítið tár.

 

Sæll með brosi

silfurtrosi

seinna lá.

Lítill maður

mjúklimaður

mömmu hjá.

 

Tár í augum

tak í taugum

töfranótt.

Ljómann bjarta

legg að hjarta

pabba fljótt.

 

Ljúfa vonin

læst við soninn

kærleikskraftur

allt ég þyldi

ef hann vildi

koma aftur.

 

Ást og mildi

eftir skildi

undur hjótt.

Hvíslað forðum

ástarorðum

eina nótt.

 

 

 

       Höf:  Vilborg Traustadóttir

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Bjarnason

Mér líkar ákaflega vel við þetta ljóð. Takk fyrir mig.

Ragnar Bjarnason, 14.3.2007 kl. 23:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband