Fótfesta

  

Glæta vonanna

gægðist inn.

 

Eitt andartak

var hugurinn

í uppnámi.

 

Heilsufarslega séð

var hættan mikil.

 

Andleg álag

ótakmarkað.

 

Sem betur fer

brást þér bogalistin

og ég slapp með skrekkinn.

 

Í hvert eitt sinn

hugsa ég eins

og hættan vofir yfir

aðeins einu sinni.

 

Ég hef náð fótfestu

á flughálum brautum

framtíðarinnar.

 

 

    Höf: Vilborg Traustadóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gylfi Björgvinsson

Flott ljóðin  þín Vilborg  Ertu  ekkert að  fara að gefa  þetta út

Gylfi Björgvinsson, 13.3.2007 kl. 09:35

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ætlaði einmitt að fara að segja það.  Það er samt ákveðin depurð í þeim.  Eitthvað sem þú hefur upplifað og ert sennilega að yrkja þig út úr.  Ljúfsárt.  Það er gott að fá útrás í ljóðum.  Ef til vill fáum við bráðlega að heyra einhver sem eru með meiri gleði í   Það er gott að ná fótfestu í fremtíðinni jafnvel þó brautin sé hál.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.3.2007 kl. 10:17

3 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Hæ,  Gylfi þetta verðurr vonandi gefið út með athugasemdum þegar ljóðunum hefur verið bloggað upp í 50.  Ásthildur og þið bæði takk.

Vilborg Traustadóttir, 13.3.2007 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband