Ljós í læstum skúr

Svif fuglanna

villt vængjatak

og varp.

Allt mitt líf

endurspeglað

í einn sarp.

 

Augnablik

logaði ljós

í læstum skúr.

Þessi skúr

var ekkert annað

en fuglabúr.

 

Fjör hvarf úr augum

fjötrað hvert spor.

Síðan hefur vantað....

.................vor.......

 

 

    Höf:  Vilborg Traustadóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband