sun. 11.3.2007
Bloggvinur Magnús Þór Jónsson
Magnús Þór eða Maggi mark eins og hann kallast meðal Bloggverja er systursonur minn. Sonur Sollu systir. Ég fékk þann heiður að fá að halda honum undir skírn heima á Sauðanesi fermingardaginn minn. Eitthvað dróst á langinn að klerkur kæmi í hús og Maggú lill var ný sofnaður þegar hinn helgi maður birtist. Maggú lill var rifin upp á eyrunum og færður í kjól og hvítt og það líkaði honum engan veginn
. Við frændsystkin vorum drifin til stofu þar sem athöfnin skyldi fara fram. Til að gera langa sögu stutta mátti ekki á milli sjá hvort okkar var í verri aðstöðu. Hann eldrauður í framan og gargandi í fanginu á mér undir ræðu prests, eða ég eldrauð í framan og stamandi upp nafninu þegar ég loksins komst að með það fyrir prestinum. Eftir að nafnið var komið á þennan nýja og háværa meðlim Þjóðkirkjunnar dreif amma hans í Hofsósi hann í vögguna og ruggaði honum uns hann féll í ómegin
. Allar götur síðan þann dag hefur Maggi verið bæði hávær og ákveðinn. Hann hefur alltaf vitað hvað hann vill og hann vill að Liverpool hafi heimsyfirráð eða.....?


Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.