Bloggvinkona Magga Trausta

Bloggvinkona Magga Trausta er Magga systir.  Hún er aðalféhirðir Landsbankans á Akureyri.  Magga systir fer þangað sem hún ætlar sér og er hin vænsta systir.Hún fékk m.a. í nýrun af þráa þegar hún var lítil telpa.  Pabbi var að vinna úti frameftir kvöldi í vitlausu veðri þegar við áttum enn heima á Djúpuvík þar sem ég er fædd.  Magga systir vildi vera með honum og þá var hún auðvitað þar.  Hún var illa klædd og fékk fyrrnefnt nýrnakast upp úr krafsinu. Það varð að senda hana til Hólmavíkur á sjúkrahús með bát. Solla systir varð víst mjög öfundsjúk yfir “kaupstaðaferð” systur sinnar en ég man ekkert, ef ég var þá fædd? Best að fjölyrða ekki frekar um Möggu systir en bloggið hennar er enn læst.  Hún er að raða þar inn myndum eftir sig en hún hefur lært að mála og er býsna flink í því verð ég að segja.  Gaman að eiga hana að bloggvinkonu og verður enn meira gaman þegar hún opnar bloggið almenningi.Wink  Rock on sister......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Takk fyrir þetta. Já, minnisstæð er Hólmavíkurferðin þó fárveik hafi ég verið. Og þvílíkt hvað mér þótti Hólmavík stór bær, miðað við Djúpuvíkina okkar litlu. Þegar ég kom síðast til Hólmavíkur fyrir tveimur árum hugsaði ég hinsvegar um þessa daga á sjúkrahúsinu á Hólmavík og fannst nú þorpið frekar smátt í sniðum en þar er mjög fallegt. Já, þarf að huga að því að opna síðuna þegar ég verð komin með fleiri myndir og eitthvað viskulegra að segja. Gaman að sjá ljóðin þín hlaðast inn Vilborg. Magga systir

Hulda Margrét Traustadóttir, 12.3.2007 kl. 08:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband