Bloggvinkona Herdís.

  

Herdís er eitt lítið STÓRVELDI.  Hún er litla systir “elstu og bestu” vinkonu minnar Kristínar.  Herdís fylgdist náið með ýmsum “djammtilburðum” okkar Kristínar og þeim á stundum yfirgengilegum (kalt mat í dag).  Ekki hefði ég viljað vera mamma okkar Kristínar þá!  Hvað um það, úr Herdísi rættist ótrúlega vel miðað við óæskileg áhrif okkar á hana í bernsku norður á Sigló.  Herdís er lærður meinatæknir, starfar hjá Rauða Krossinum og er í masters námi í auðlindanýtingu ef ég man rétt.  Hún er bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Mosfellsbæ.  Herdís er umfram allt góð og skemmtileg stelpa og góð vinkona.  Ég er mjög ánægða að eiga hana að bloggvinkonu í dag auk þess að hitta hana hressa í fjölskylduboðum tengdum Kristínu stóru systir hennar. W00t


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Love you toooooooo

Veistu það er eins gott að ég er gömul sál... þess vegna lifði ég þetta af með ykkur Stóru um árið  , en ég naut hverrar mínútu og ekki síst á Sauðanesi.. Hvað á maður annars að gera þegar maður er kominn á elló og hefur ekkert annað að gera en að rifja upp gamla góða tímann, drekka sherry og reykja smávindla.

kveðja, Herdís

Herdís Sigurjónsdóttir, 10.3.2007 kl. 20:16

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Já Sauðanes...... man þegar við Kristín réttum þér blysið og það sprakk í höndunum á þér.  Þegar við lásum leiðbeiningarnar stóð"stingið í jörð og víkið frá".  Þetta kostaði ferð á spítalann og þú fékkst reifaða hendi.  Ertu ekki örugglega með alla puttana???  Skömmu síðar var keyrt á hurðina í Strákagöngunum svo þeim varð að loka i nokkrar klukkustundir.  Fjallkonan þar að verki samkvæmt Sigmund í Mogganum!!!

Vilborg Traustadóttir, 11.3.2007 kl. 12:26

3 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

einmitt þarna ákvað ég að vinna á sjúkrahúsi  ótrúlega spennandi og ekki aftur snúið eftir það...Já ég er búin að fara með hluta tvö af mínum krökkum á slysó vegna flugeldaslysa og það var ekki vegna þess að ég læsi ekki á blysið,,,þau eru bara svo lík pabba sínum sem fór vikulega á slysó . En ég vildi óska þess að ég ætti Sigmund myndina....reddum hennir fyrir fimmtugsafmælið og verum með stand-up í afmæli Fjallkonunnar ...

Herdís Sigurjónsdóttir, 11.3.2007 kl. 19:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband