Óhamingjusama kona

 

 

Góðan daginn!

Óhamingjusama kona.

Er maðurinn ennþá fullur?

Börnin grátandi?

Og bleyjurnar óþvegnar

Skítug gólfin?

 

Skrælnaðar varir þínar

þrá svölun?

Þreyttar hendur þínar

hvíld?

 

Þegar hugur þinn reikar

til hamingjulanda.

Þá hugsaðu til mín.

 

Ég heilsa þér

óhamingjusama kona.

 

       Höf:  Vilborg Traustadóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Agný

Flott ljóð hjá þér vinkona og því miður raunsannt..og ansi margir óhamingjusamir eða með vanlíðan þó svo að ekki sjáist alltaf utan á viðkomandi.. Kanski maður ætti að senda kærleiks hugsanir á hverjum degi til allra sem að maður veit að eiga erfitt? Þó maður geri það stundum..því ekki alltaf ...Knús til þín vinkona og bara að segja þér að mér þykir vænt um þig  ég veit að þú ert ekki að skrifa um þig hér

Agný, 9.3.2007 kl. 15:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband