fim. 8.3.2007
Bloggvinkona-Grayzana
Grazyna María Okuniewska bloggvinkona var með mér í Stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins. Þeim ótrúlega skemmtilega skóla. Grayzana er hjúkrunarfræðingur, pólsk að uppruna en hefur búið á Íslandi í 15 ár ef ég man rétt. Hún er frá Gdansk og gátum við spjallað mikið um Pólland en eins og alþjóð veit fór ég í vel heppnaða detox-meðferð þangað. Heilsuhælið sem ég dvaldi á U Zbója er skammt frá Gdansk (90 km) og þegar við spjölluðum saman kom fram að systir Grazönu þekkir fólkið sem á og rekur heilsuhælið og snæðir þar stundum.Lítill heimur
. Grayzana er dugleg kona, er í framboði til alþingis í Reykjavík fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Leggur áherslu á bætt tungumálanám fyrir innflytjendur ásamt auðvitað heilstengdum máluum sem og öllum öðrum málaflokkum. Það var gaman að kynnast henni á námkeiðinu og ég mun kjósa hana, alveg pottþétt.

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.