fim. 8.3.2007
Bloggvinir -Agny og Keli
Agny bloggvinkona og vinkona er búsett í Borgarnesi ásamt bloggvini og vini Kela. Agny eða Inga er góð og traut manneskja sem hefur reynst mér vel. Vil höfum sótt saman námskeið í (ég man ekki hverju) CST?? Hjálp Inga? En það var gaman og þarna lærðum við eins og ekkert væri að lækna fólk af hinum verstu fóbíum. Inga læknaði mig af minni alræmdukóngulóarfóbíu og ég hana eða aðra konu af ég man ekki hverju, og þó ég myndi það mætti ég ekki segja það. Keli hefur verið mér sem klettur í tölvumálum og núna þyrfti ég sannarlega að fara að bjóða honum í heimsókn þar sem talvan mín virðist stundum fá sjálfstæðan vilja og vinnur þá upp á sitt einsdæmi í hinum og þessum prógrömmum. Þau skötuhjú eru betri en enginn og hjá þeim er hin eðalborna Mímí af ætt Bengala komin og afkvæmið Palla kom svo í heiminn eftir að Mímí stökk út af þriðju hæð til að næla sér í hana. Mímí bjó fyrst hjá barnabarni mínu sem með réttu á hana (ef einhver treystir sér til að eiga kött) en er nú hjá ömmu.
Sem sagt bloggvinir góðir Inga og Keli og enn betri raunvinir.
Athugasemdir
Takk fyrir fallegu orðin þín kæra vinkona
...maður kann ekki alltaf að taka fallegum orðum þó svo maður eigi auðvelt með að sýna og segja slíkt sjálfur við aðra.Við getum þakkað eða kennt internetinu um vináttu okkar
og ég er mjög þakklát fyrir að hafa kynnst þér og eiga vináttu þína. Já við lærðum saman meðferðarform sem heitir EFT hægt að sjá hvað það er hér http://wwww.emofree.com ´Já við losnuðum við ýmsar fóbíur þarna bara með því að "banka" smá...kanski þetta "bank " hafi verið til að vita hvort einhver væri "heima"
Þú hafir "bankaðir" vefjagigtarfjárann eitthvað í burtu.. Við þurfum að fara að hittast til að "banka" meira af fóbíum og krankleika í burtu.. þetta er svo hrikalega einfalt að maður gleymir því miður að nota það....
Best að fara og "banka" karlinn sundur og saman
svo að hann losni við ýmsar fóbíur og firrur..lofthræðslu og svoleiðis.. Kem til þín næst þegar ég er í bænum verð allavega 23 mars..held ekki fyrr..og "banka" þig...
og minntu mig á að koma með diskana...Stórt knús til þín, karlsins og til eðalkattanna
Agný, 9.3.2007 kl. 16:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.