Bloggvinir-Jens Kristján

Jen Kristján Guðmundsson betur þekktur sem  jensgud hér í Bloggheimum hefur þann góða sið að kynna bloggvini sína til sögunnar.  Ég ætla að herma þetta eftir honum.  Jens Kristján er skólabróðir frá Steinstaðaskóla í Skagafirði.  Hann er bróðir bestu vinkonu minnar þann vetur en sú heitir Júlía Rós.  Jens Kristján var kraftmikill og góður drengur.  Dálítið mikill fyrirferðar en samt “góði gæjinn”, töffarinn sem maður fílaði góða músik með. (Aðallega Creadens Clearwater Revival). Listfengur Kristján, skrifaði og teiknaði afar fagurlega enda skrautskriftarkennari í dag.   Ég man ekki hvort ég var nett skotin í honum en held þó ekki. Blush Hann var einfaldlega bróðir vinkonu minnar.  Eins og tíðkaðist stundum í þá daga var eldra systkinið látið “bíða” eftri því yngra til hagræðingar fyrir sveitaheimilin.  Held að þannig hafi það verið hjá þeim systkinum og held að Jens Kristján hafi verið ári eldri en Júlía Rós en í sama bekk og hún ef ég man rétt.  Ég man að ég fór eina helgi í Hrafnhól með Júlíu Rós og við “riðum heim til Hóla”.  Svo skemmtilega vildi til að ég var sett á mjög svo heimfúsan hest á bakaleiðinni.  Hesturinn tók öll völd og í einum spreng með mig dinglandi á baki (gott ef ekki berbakt) stökk hann heim að Hrafnhóli, upp bröttustu brekkuna og heim á hlað.  Ég heyri enn í huganum dillandi hlátur Júlíu Rósar og yngri bróður hennar (Stefáns?) þar sem þau tvímenntu á viðráðanlegri klár í kjölfar okkar heimfúsra.  Þá var BARA gaman.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

Takk fyrir kynninguna á mér, Ippa mín.  Sjálfum þykir mér gaman af að lesa um kynningu þína á öðrum bloggvinum.  Eins og ég var leiðinglegur við mörg skólasystkini á þessum árum (lamdi Jóa á Stapa næstum daglega,  Ingibjörgu frá Óslandi og fleiri) þá held ég - og vona - að ég hafi aldrei verið vondur við þig.  Í minningunni líkaði mér alltaf svo vel við þig.  Á endurfundum skólafélaga okkar fyrir nokkrum árum var ég minntur á að hafa lamið fleiri krakka,  sem ég man reyndar ekkert eftir.  Sömuleiðis hef ég lent í því að heimsækja gömul skólasystkini frá Laugarvatni sem hafa komið mér á óvart með upprifjun á að ég hafi lamið þau.  Var og er búinn að steingleyma því.  Til að mynda heimsótti ég eina skólasystir mína á Tálknafirði fyrir einhverjum árum þegar ég var að kenna þar skrautskrift.  Mig minnti að við hefðum verið svo góðir vinir.  En þá sagði hún við mig:  "Mikið er ég ánægð yfir að þú skulir vera kominn með ýstru.".  Ég varð eitt spurningarmerki.  Hún sagði:  "Þú varst alltaf að lemja mig fyrir að vera feit, svo að mér þykir það helvíti gott á þig að sjá að þú ert kominn með ýstru."  Ég kom alveg af fjöllum og man ekkert eftir að hafa verið leiðinlegur við hana.  Í minningunni líkaði mér alltaf vel við hana og líkar enn vel við hana.  En þessu var og er ég búinn að gleyma.  Stóð í þeirri trú að ég hafi bara lamið stráka.

Þú lýgur því auðvitað að hafa verið eina stelpan í Steinstaðaskóla sem var ekki skotin í mér.  Nei, ég segi nú bara svona í gríni. 

Ég man vel eftir því þegar þú komst í helgarfrí heim með Júlíu.  Það var mjög gaman og mamma á ljósmyndir frá því.  Bjössi frá Neðra-Ási er með á myndunum. Hann hlýtur að hafa komið í heimsókn eða verið yfir helgina líka.  Þú ert helvíti sæt á myndunum.  

Stefán er eldri bróðir okkar Júlíu.  Kannski var það Svandís yngri systir okkar Júlíu sem tvímennti með Júlíu.  þar fyrir utan man ég líka eftir að það var bara gaman þessa helgi.   

Jens Guð, 12.3.2007 kl. 23:11

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Svandís hefur það verið. Ég gat bitið frá mér þannig að ég man ekki hvort þú varst e-ð að bögga mig.  Held þú hefðir fengið á baukinn þá, bæði hjá mér og Júlíu Rós.  Man hins vegar eftir að Pétur Lúðvíks (frá Sigríðasrstöðum í Fljótum) sparkaði í rassinn á mér og rófubraut mig í upphafi skólaársins á Steinsstöðum. Þvílíkt vont.  Verð að fara að fá að sjá þessar myndir og fá að dæma um sætleika þeirra.  Skrýtið að detta svona inn í "gelgjutímann" hér tveir "akfeitir" eldri borgarar.  Verð að fá að vita við tækifæri um afdrif Júlíu Rósar og hvar hún er niður komin.Þú ert skemmtilegur bloggari og gaman að lesa þína sýn á mál.

Vilborg Traustadóttir, 13.3.2007 kl. 00:30

3 Smámynd: Jens Guð

Við skulum ganga út frá því sem vísu,  Ippa mín, að við höfum verið góðir vinir í Steinsstaðaskóla.  Ég man að minnsta kosti ekki eftir öðru.  Þú varst hress og skemmtileg , rosalega grönn og lalleg.  Það fór frekar lítið fyrir þér í skólanum, þannig lagað.  Sem góð vinkona Júlíu hef ég áreiðanlega ekki verið leiðinlegur við þig.  Mér þótti og þykir svo vænt um Júlíu að lamdi ekki hennar vini.  En mér varð á einstaka sinnum á að lemja Pétur Lúðvíks.  Að ég held í hugsunarleysi og vegna félagslegs vanþroska.  Sé vitaskuld eftir því í dag vegna þess að hann er frábær náungi.   Eitt sinn lenti ég í ryskingum við Kristinn Ásmundsson úr Fljótum.  Handleggsbraut hann með tilheyrandi eftirmála, gipsumbúðum og leiðindum.  Samt vorum við góðir vinir.  En strákar takast á,  eins og gengur.  Eins tókumst við Rögnvaldur Fljótatröll á.  Hann var svo sterkur að ég varð að beita brögðum í okkar áflogum.

  Ég man aldrei eftir að þú hafir þurft að bíta frá þér í okkar samskiptum.  Ég man bara eftir þér sem sætri stelpu.  Skemmtilegri og ljúfri, sem lítið bar á.  Ég var eitthvað að dinglast með Ingu Möggu frá Daufá og Hrefnu,  og kannski var ég aldrei að pæla í þér af því að þið Júlía voru svo miklar vinkonur.  Ég man samt eftir því að mér þótti þú sæt og þó öllu heldur þægilega skemmtileg.  Ég var verulega uppvöðslusamur (sem þú veist kannski lítið um vegna þess að hljótt fór um innbrot mín á næstu bæjum við Steinstaði) og slagsmálin fóru að mestu fram á heimavist okkar drengjanna.

Júlía hefur verið búsett í Svíþjóð í kannski hátt í 20 ár.  

Jens Guð, 13.3.2007 kl. 02:19

4 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

He he, ja....fyrst Pétur Lúðvíks rófubeinsbraut mig er ég bara feginn ef þú lumbraðir aðeins á honum.  Ég átti í þeim meiðslum í mörg ár...  Ég man þig fjörugan og kjaftforan en ekki svona lemju-strák?? Já vissi af Jílíu Rós í Svíþjóð einhvern tíma.  Fæ heimilisfangið hjá þér þegar ég fer næst út.  Ég var hrikalega feimin fyrst á Steinsstöðum.  Þá meina ég nánast lömuð af heimóttskap.  Júlía Rós "hló" mig upp úr því.  Þaðan er komið orðtækið fræga að "pulsa sig upp" .(Svo átti Júlía Rós svo töffaralegan bróðir sem mér fannst, sem var ábyggilega betra að hafa með sér en á móti)

Vilborg Traustadóttir, 13.3.2007 kl. 11:34

5 Smámynd: Jens Guð

Þú mættir ekki á endurfundinn í Steinsstaðaskóla fyrir örfáum árum.  Það var þvílíkt gaman.  Ég hef sjaldan skemmt mér eins vel.  Hópurinn small einhvern veginn svo skemmtilega saman aftur.  Það var svo gaman að hitta þetta fólk sem maður hafði ekki séð í áratugi eftir að hafa umgengist það daglega í 2 vetur. 

  Suma þekkti ég varla.  Þeir voru svo breyttir í útliti.  Einhverjir voru orðnir sköllóttir.  Aðrir orðnir gráhærðir.  Margir höfðu fitnað.  En um leið og maður áttaði sig á hver var hver þá fékk maður "flash back" aftur í tímann.

  Þó er svo furðulegt að suma þekkti ég ekki.  Sama hvað þeir reyndu að hressa upp á minni mitt.  Mér tekst ómögulega að rifja upp hverjir þeir eru.

  Makar gömlu skólasystkinanna féllu ótrúlega vel inn í stemmninguna.  Ég og Pétur Lúðvíks lögðum undir okkur gamla skólahúsið.  Eða réttara sagt tókum þar saman herbergi og eftir kvölddagskrá laugardagsins héldum við þangað ásamt "krökkunum" frá Sölvanesi,  Hrefnu,  Skarpa o.fl. Sátum og kjöftuðum fram á morgunn.  Pétur drapst á tímabili ofan í eldhúsvasknum.  Það var frekar fyndið.  Hann ruglaðist smá eða ringlaðist í kjölfarið.  En var alltaf skemmtilegur.  Við sungum líka heilu ósköpin á milli þess sem nostalgían tók völd í upprifjunum á skólaárunum. 

  Síðdegis daginn eftir héldum við Pétur í sumarbústað Hrefnu og hennar fjölskyldu.  Þetta var allt svo yndislega skemmtilegt að ég lifi enn á því og hef haft meira samband við gömlu skólasystkinin síðan en næstu áratugi á undan.  Þú verður að mæta næst þegar svona endurfundur verður. 

Jens Guð, 15.3.2007 kl. 01:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband