Leiktu.

 

Leiktu fyrir mig.

Gerðu eitthvað

aðeins eitthvað

sama hvað það er

eitthvað gott

sem sannar ást þína.

 

Ég skal þá gefa þér

eitt bros og tár

gefa þér einum

og engum öðrum

drauma mína, vonir mínar,

heit tár og traust mitt.

 

        Höf: Vilborg Traustadóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

  Ég er búinn að átta mig á einu varðandi ljóðstíl þinn - þó að ofanskráð ljóð sé ekki dæmigert varðandi það:  Þú trompar að öllu jafna út áhrifaríkri lokalínu (punch line).

  Mér þykir ólíklegt að þú munir að ég er ljóðakelludall.  Yrki að vísu ekki sjálfur sem neinu nemur.  En hef þeim mun meira gaman af að lesa ljóð annarra.  Í Steinsstaðarskóla varð mér á að lemja Jóa í Stapa af litlu tilefni.  Áttaði mig ekki á því fyrr en mörgum árum seinna að ástæðan var sú að hann átti létt með að semja góð kvæði.  Viðbrögð mín við hæfileikum Jóa voru frumstæð aðferð til að fá útrás fyrir öfund í hans garð.  Verra þótti mér þegar hann varð uppvís af barnaníði gagnvart börnum sínum fyrir nokkrum árum.  Hlaut dóm fyrir það og samviskubit mitt yfir barsmíðum á honum fjöruðu út eins og dögg fyrir sólu.  

Jens Guð, 8.3.2007 kl. 03:01

2 identicon

Þetta er nú "bara upp úr mér" eins og kellingin sagði þegar henni var hælt fyrir góða matargerð.............Ég man að þú hafðir áhuga á mjög mörgu og varst góður í íslenskunni m.a. 

Vilborg Traustadóttir (IP-tala skráð) 8.3.2007 kl. 08:37

3 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Þetta er nú "bara upp úr mér" eins og kellingin sagði þegar henni var hælt fyrir góða matargerð.............Ég man að þú hafðir áhuga á mjög mörgu og varst góður í íslenskunni m.a. 

Vilborg Traustadóttir, 8.3.2007 kl. 08:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband