mið. 28.2.2007
Magga systir
Góð hugmynd hjá Möggu systir að birta ljóðin mín hér. Ég er nefnilega skúffuskáld og hef ekki komist upp úr skúffunni af ýmsum ástæðum. Svona er það þegar maður þorir að byrja á nýjum hlutum, í okkar systranna tilfelli að blogga, þá koma nýjar og nýjar hugmyndir upp. Það er það sem er svo gaman og spennandi við það að stíga einu skrefi lengra en maður þorir. Við Magga systir erum núna að flækja okkur í vef bloggsins. Eitt skref í einu. Hér á undan er fyrsta ljóðið sem ég birti á blogginu. Það heitir Dagur og nótt. Njótið vel...
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.