Dagur og nótt.

   

Ljós

hvers leitar þú hér?

Hér er ekkert að fela

ekkert að skammast sín fyrir

og engin eftirsjá.

Hver sendi þig?

 

Í morgunroðanum

sérðu blóð aldanna.

Dagurinn og nóttin

að berjast.

 

Dagur hver líður

og kvöldblærinn

stráir stjörnum á himininn.

Í ljósaskiptunum

takast á sættir.

 

Sko!

Dagurinn og nóttin

elskast.

Alveg eins og við.

   

          höf: Vilborg Traustadóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Frábært - sko, það er bara að byrja. Stefni á að setja myndir af málverkum fljótlega. Flott hjá þér. Sjáumst.

Magga

Hulda Margrét Traustadóttir, 1.3.2007 kl. 08:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband