Mínum augum lít ég löginn

Mínum augum lít ég löginn
lengi er hún Borga gamla spaugin.
Sé ég skútu skríða inn
skyldi það vera hann Viktor minn.
Langamma mín á Felli í Árneshrepp orti þessa vísu. Hún hét Vilborg eins og ég.  Gunnar á Eyri fór með vísuna fyrir mig þegar ég hitti hann í erfidrykkju Önnu Jakobínu frá Dröngum í fyrrasumar.  Ég lærði hana fljótt og rifjaði hana upp með sonarsyni mínum sem ég passaði í dag. Hann heitir Viktor.....Svona fer lífið í hring.
Langaði bara að deila þessu með ykkur sem eruð að kíkja hér inn.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Já svo sannarlega hring, eftir hring...skemttilegt þetta Vilborg. Hvenær kemur ljóð eftir þig ?

Hulda Margrét Traustadóttir, 28.2.2007 kl. 08:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband