sun. 25.2.2007
Bloggaraflokkurinn
Hugsanlega verður stofnaður nýr flokkur Bloggaraflokkurinn á næstunni. Í ljósi þess hve gríðarlega margir blogga á Íslandi þætti nú ekki vanþörf á. Þetta verður þverpólitískur flokkur bloggara úr öllum áttum. Sameiginleg markmið verða skilgreind nánar af bloggurum en þar sem bloggarar láta ýmis mál til sín taka er greinilega ekkert heilagt í þeim efnum. Hugmynd um flokkinn er að þetta verði þverpólitískt afl sem smjúgi svo hvert inn í sinn flokk með áherslur Bloggaraflokksins að leiðarljósi og beiti sér þannig.
Strax er hægt að ýminda sér breiðan hóp fólks eins og Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og yfirbloggari, Ómar Ragnarsson umhverfisidjót, Lára Stefánsdóttir varaþingmaður og skólasystir frá Laugum, beittur penni. Jónína Benediktsdóttir framkvæmdastjóri og frumkvöðull í heilsumálum ýmiss konar o.s.frv o.s.frv. Svo eru allir venjulegu" bloggararnir eins og ég og fleiri sem eyða ómældri orku í að blogga. Ég vil virkja þessa orku á breiðri grunni og mynda þannig aflmikla orkuveitu skoðanaskipta og tjáningarveitu inn í stjórnmálaflokkana.
Látum hlusta á okkur.
----------
Við eigumþað skilið!
----------
Bloggaraflokkurinn lengi lifi.
----------
Sjá nánar í spjalli á síðu bloggvinkonu minnar Agný undir hittingi "Bloggvina" á Skaganum.
Athugasemdir
og páverbloggflokkurinn ......
Emil Tölvutryllir (IP-tala skráð) 26.2.2007 kl. 17:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.