fös. 23.2.2007
Barnabörn
Einn góður vinur okkar sagði einu sinni. "Ef ég hefði vitað hvað þetta yrði gaman með barnabörnin þá hefði ég skellt mér beint í þau og sleppt börnunum."
Kannski það sem koma skal? Hver veit í tæknivæðingu framtíðarinnar?
Ég get tekið undir þetta hjá honum að vissu leyti. Það sagði einu sinni vitur kennari og listamaður við mig þegar ég átti efitt með einn strákinn okkar. "Fólk hefur líkamlega besta þroskann til að eignast börn um tvítugt en andlega bestan til að ala þau upp um fimmtugt."
Ég held að þetta sé málið í mörgum tilvikum. Í dag hef ég þolinmæði sem ég hafði ekki. T.d. var ég alltaf stressuð yfir drasli,í dag er ég ekkert að stressa mig á því. Ég nýt þess bara að hafa aksjón í kring um mig. Hins vegar er ég ekki eins spretthörð á eftir þessum elskum.
Allt hefur sinn tíma, við verðum bara að njóta þess sem við höfum þegar við höfum það.
Hratt flýgur stund.
Athugasemdir
Hæ gaman að lesa síðuna þína sem er einlæg og góð og myndirnar af prinsunum á hinni bloggsíðunni þinni eru meiri háttar. Ég er hjartanlega sammála þér með barnabörnin, þegar maður er 40+ þá er það luxus að fá að vera með þeim, ég er að fara að vera hjá sonarbörnunum mínum núna. Ég kíki alltaf reglulega inn á síðuna þína og les og til hamingju með hana.
Bestu kveðjur, She
Sigríður Hrönn Elíasdóttir (IP-tala skráð) 23.2.2007 kl. 21:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.