mið. 21.2.2007
Öskudagur
Öskudagurinn hjá mér er detox dagur.
Ég fór í Nóatún í gær og keypti EINN saltkjötsbita fyrir okkur hjónin. Eftir að maðurinn í kjötborðinu brá sér fram fyrir kjötborðið (akkúrat þegar kom að mínu númeri) til að sinna æstum viðskiptavin sem fann ekki einhvern fj......... og annar loks afgreitt mig, rölti ég fram búðina með augu annarra viðskiptavina límd á bakinu.
Einstæðingurinn hugsuðu þau eflaust eða e-ð álíka.
Þegar ég hafði svo staðið í biðröð misþolinmóðra viðskiptavina ( það var bara einn kassi opinn) og eftir að hafa hughreyst mann sem sagði að maturinn yrði orðin skemmdur þegar við loksins kæmumst út með því að það væri þá eins gott að þetta væri saltkjöt og eftir að hafa sagt þeir síðustu verða fyrstir" við konu sem var óróleg og kallaði eftir meiri þjónustu fór ég til pabba og mömmu.
Öskudagurinn er sem sagt rólegur hjá mér og ekkert nammi neitt.
Ég reyndi einu sinni að fá vinkonu mína með mér í Ríkið til að syngja fyrir þá sem þar störfuðu og athuga hvort við fengjum eins og eina bokku. Hún var þá búin með kvótann og vildi ekki koma með. Ég kunni ekki við að fara ein en mikið langaði mig að láta á þetta reyna.
Athugasemdir
Gaman að þessu með kjötbitann góða, vona að hann hafi smakkast vel - mitt í detox þönkunum !! Ertu búin að frétta hvort Lalli og félagar notuðu þessa góðu hugmynd ?
Bið að heilsa Magga siss
Magga (IP-tala skráð) 22.2.2007 kl. 09:54
Ekkert frétt af Lalla og félögum.
Vilborg Traustadóttir, 22.2.2007 kl. 11:31
Sæl kæra vinkona.Vegna mikilla anna hjá mér þá hef ég ekki farið inn á bloggið hjá þér fyrr en nú síðan um síðustu helgi.Það er alltaf jafn gaman að lesa yfir hugleiðingarnar hjá þér og skoðanir á persónum, málefnum og því sem er á döfinni hjá þér.Ég vil nú benda á að það með sönginn hafði ekkert með kvótann að gera heldur þessa rödd sem almættið úthlutaði mér á sínum tíma
.Annað hvort hefur verið sparað í röddina (ég held þó ekki því hún er ansi há og skerandi) eða það sem mig grunar að tóneyrað klikkaði ferlega við framleiðslu foreldra minna á mér....En ég reyndi þó lengi vel að gaula en þegar ónefndur sonur minn horfði á mig skelfdum augum og sagði mamma mín gerðu það ekki syngja fyrir okkur
eftir það hef ég haldið minni miklu rödd fyrir mig.En þetta með kvótann mér skilst að hann gangi kaupum og sölum og ekki fleiri orð um það
.Kveðja frá elstu og bestu
Kristín Sigurjónsd.. (IP-tala skráð) 24.2.2007 kl. 19:42
He he he...Þú meinar... Held að röddin hafi aldrei brugðist þér kæra vinkona....hvorki í mæltu máli eða söng.
Kvótinn??? Hef ekki áhuga hvorki á að kaupa eða selja. Svo sigla sumir í strand þrátt fyrir nægan kvóta
....
Vilborg Traustadóttir, 24.2.2007 kl. 23:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.