Lítil dæmisaga

Íslenskt og japanskt fyrirtæki ákváðu að keppa í róðri á áttæringi.
Liðsmenn frá báðum fyrirtækjum æfðu stíft og voru í toppformi þegar að sjálfri keppninni kom. Japanirnir urðu 1 km á undan íslenska liðinu.
 
Eftir útreiðina var mórallinn að sjálfsögðu heldur slæmur í íslenska fyrirtækinu og yfirstjórnin ákvað að fyrirtækið yrði að vinna keppnina að ári. Var settur á fót vinnuhópur til að skoða vandamálið.
 
Eftir heilmiklar pælingar komst vinnuhópurinn að því að Japanirnir létu 7 menn róa en einn stýra. Í íslenska liðinu var það einn sem réri og sjö sem stjórnuðu. Vegna þessarar miklu krísu afréð yfirstjórn íslenska fyrirtækisins að fá ráðgjafarfyrirtæki til að kanna strúktur íslenska liðsins og gera nýtt skipurit ef á þyrfti að halda.
 
Eftir margra mánaða vinnu komust stjónunarfræðingarnir að því að í íslenska bátnum væru það of margir sem stjórnuðu en of fáir sem réru. Með hliðsjón af skýrslu sérfræðinganna var strax ráðist í skipulagsbreytingar. Í stað þess að hafa sjö stýrimenn, einn áramann voru nú hafði fjórir stýrimenn, tveir yfirstýrimenn, einn leiðtogi stýrimanna og einn áramaður. Að auki var áramaðurinn "motiveraður" samkvæmt meginreglunni: "Að breikka starfssvið starfsmanna og veita þeim meiri ábyrgð".
 
Næstu keppni unnu Japanirnir með 2 km forskoti.
 
Íslenska fyrirtækið rak að sjálfsögðu áramanninn með tilliti til lélegrar frammistöðu, en greiddi bónus til stjórnarinnar vegna þeirrar miklu vinnu sem hún hafði innt af hendi.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Vilborg, af því þú verður lengur í burtu en bara yfir helgina, vilt þú skrifa einhverja umsögn frá þér um  Meistarann hans Þorvaldar sæta og senda mér í tölvupósti, ég get svo sett hana inn fyrir þig á sunnudaginn. Það væri gaman fyrir okkur hin ef þú nennir að hafa fyrir því. En fyrir alla muni engin pressa, alls ekki svo að skilja. 

Marta B Helgadóttir, 27.9.2007 kl. 21:09

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Æ ég er ekki farin að lesa hana. Ætlaði bara að lesa hana úti í Póllandi.

Vilborg Traustadóttir, 27.9.2007 kl. 21:20

3 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ok. Ég skil. Auvitað tilvalið.

Góða ferð og njóttu vel. 

Marta B Helgadóttir, 27.9.2007 kl. 22:20

4 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Þar sem ég er dálítið "eftirávitur" þá kem ég kannski með einhverja færslu þegar ég kem heim.  Takk fyrir og gangi ykkur vel og já Þorvaldur ER sætur.....

Vilborg Traustadóttir, 27.9.2007 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband