Þreytt!

Þreytt, þreytt, þreytt.  Það er orð dagsins.  Tók Hveragerði með stæl í vikunni.  Innrituð á þriðjudag og pantaði starx snyrtingar og fór í hjúkkuviðtal.  Læknaviðtal á miðvikudag og fékk stundatöflu.  Í bæinn á miðvikudag að redda ýmsu m.a. afruglara til að við vinkonurnar sem erum saman á "hælinu" gætum horft á Stöð 2 inni á herbergi og um kvöldið á myndlistarnámskeið sem ég er á í Kópavogi. Átti svo að mæta í tækjasal á fimmtudag en harðneitaði því þar sem snyrtingarnar voru bókaðar þann dag. Maður hefur nú forgangsröðina á tæru.  Eftir snyrtingu þurftum við að vasast í að fá nýjan afruglara eða öllu heldur gamlan afruglara þar sem digital er ekki á Heilsuhælinu. Sennilega tók um þrjár klukkustundir að stilla hann inn með Og Vodafone á línunni.  Það gekk hvorki né rak og síminn var "sveittur" þegar ég tók við að reyna að stilla eftir að Kristín hafði verið í beinu sambandi í meira en klukkutíma.  Svo kom í ljós að það hafði gleymst að tilkynna gamla afruglarann og því var ekki búið að opna fyrir hann.  Skrýtið og við sáum aldrei beljuna! Stundataflan í heilsumálunum hjá mér hófst svo fyrir alvöru í dag og tækjasalurinn með.  Sjúkraþjálfun næsta mánudag.  En það sem ég er þreytt núna.  Kristín vinkona sömuleiðis.  Við hengsluðumst hálf slefandi af þreytu út í bíl og heim.  Þegar við komum yfir heiðina datt mér í hug að fara í ToysaRus.  Gerðum það og þaðan í Just4Kids.  Því næst hélt hver heim til sín og ekki laust við að þessi "verslunarauki" hafi sett punktinn yfir þreytumörkin!  Fékk tvo ömmustráka í pizzuna og yndilegt að sjá þá.  Ferð að sofa þreytt og sæl eftir dagsins önn.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ó! Er svona mikið púl að vera í Hveragerðishvíldardvöl

Marta B Helgadóttir, 16.11.2007 kl. 20:20

2 Smámynd: Magnús Þór Jónsson

Greinilega ekkert grín að hvíla sig frá stressinu!  Kveðja úr heilsubænum Snæfellsbæ.  Muna að horfa á Útsvar á föstudaginn.

Magnús Þór Jónsson, 17.11.2007 kl. 10:10

3 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Ofgerðu þér ekki í öllu heilsubröltinu ! Þú verður að afrugla þig fyrir öllu öðru á meðan þú ert á hælinu  En svo er það myndlistin !! Gangi þér sem best.

Missti ég af einhverju í Útsvari ??

Magga systir

Hulda Margrét Traustadóttir, 18.11.2007 kl. 13:15

4 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Maggi er að keppa fyrir Snæfellsbæ.

Vilborg Traustadóttir, 18.11.2007 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband