Menn eru dýr

Þarna er enn eitt dæmið um það hvernig menn breytast í dýr og hleypa sínum lægstu hvötum lausum þegar þeir fá aðstæður til þess.  Þá á ég að sjálfsögðu við hermennina og þá sem standa í stríðsrekstri gegn saklausu fólki.  Þetta er enn að gerast allt í kring um okkur.  M.a.s. Gyðingar sem fóru afar illa út úr Helförinni eru sjálfir að myrða fólk í Palestínu og víðar.  Af því þeir hafa "rétt" á því.  Vestrænn heimur styður við og tekur þátt í stríðsbrölti gegn saklausu fólki.  Við horfum á aðgerðarlaus meðan hver "helförin" af annarri fer fram fyrir augum okkar. Við teljum okkur stundum vera að "verja okkur" eða koma í veg fyrir óréttlætið í heiminum.  Við skiljum ekki að með þessu erum við að auka á óréttlætið.  Við getum ekki skapað friðsaman heim með því að drepa aðra og skilja eftir okkur sviðna jörð.   Við verðum að átta okkur á því að til eru menn, fyrirtæki og ríki sem beinlínis græða á stríðsrekstri og meðan svo er verður aldrei friður í okkar annars ágæta heimi.  Vöknum!
mbl.is „Ég er að breytast í dýr sem langar að deyja"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Ingi Kvaran

Það eru nú svo ekki margir gyðingar lifandi ennþá eftir helförina. Þeir sem eru lifandi eru ekki mikið í því að skjóta fólk, orðnir frekar gamlir í það...

 Fín grein annars :)

Páll Ingi Kvaran, 5.6.2007 kl. 14:58

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Syndir feðranna gæti það kallast þegar reiðin gengur kynslóð fram af kynslóð?  Takk fyrir kommentið.

Vilborg Traustadóttir, 5.6.2007 kl. 21:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband