Kílóin fjúka

Það er frábært að vera á heilsuhóteli hér í Póllandi og sjá kílóin fjúka dag frá degi.  Við stöllurnar erum mjög ánægðar með allt hér og það er gaman að segja frá því að við erum teknar inn í hópinn hér á staðnum og virkilega látnar finna hve velkomnar við erum.

Við heimsóttum heiðurshjónin Szmytka Zigmund og Zofiu í dag og fengum yndislegt te, skemmtilegt spjall og meiri fróðleik um staðhætti og lífið hér í plássinu. 

Við erum líka afar samstilltar og óhætt er að segja að okkur leiðist ekkert (vægast sagt). Við getum hlegið okkur máttlausar að viðburðum dagsins að kveldi.

Kílóin fjúka eins og fyrr segir og farin um sex af mér á þessari rúmu viku og þau máttu alveg missa sig. 

Nuddið afstaðið í dag og á morgun kemur nýr dagur með nýjum ævintýrum. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband