Kúru-veður

Þetta er veðrið þar sem maður vill liggja eins og skata undir sæng og kíkja í góða bók.  Hlusta á vindinn og hjala við kallinn og köttinn.

Lúra hjá barnabörnunum og segja þeim sögur eða bara rabba við þá.

Það er að bæta í vindinn hér fyrir sunnan núna.

Hugsa til Geirs Fannars sem er að sigla suður af landinu í snarvitlausu veðri á landstími.  Hann vonast eftir að komast í meira skjól af landinu eftir um fjóra klukkutíma. 

Nú ætla ég að setja undir mig hausinn og drífa mig á fund. 

Kúri á eftir. 


mbl.is Vonskuveðri spáð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Óska þér góðs "kúru dúrs" á eftir systir, en ég held að við sleppum að mestu núna hér  í Eyjafirðinum í þessu vonskuveðri - eða ég vona það. Vona að Geir Fannari gangi vel á landstíminu. Góða nótt

Hulda Margrét Traustadóttir, 13.3.2009 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband