Nýtt lyf við MS

NÝTT MS-LYF GÆTI LAGAÐ TAUGASKEMMDIR


Mynd með frétt

Uppfærð 24.10. - Brezkir læknar hafa greint frá nýju tilraunalyfi gegn MS gæti sem geti læknað skemmdir sem sjúkdómurinn hefur valdið samkvæmt frétt á vef BBC. Þetta er í fyrsta skipti, sem lyf kemur fram, sem beinlínis dregur úr fötlun, sem “multiple sclerosis” hefur valdið, sagðiSky fréttastofan í miðnæturfréttum sínum og kvað hér vera um að ræða “þýðingarmikla uppgötvun” vegna meðferðar gegn MS. Lyfið er ætlað að lækna, en ekki að hægja á MS.

Grein um rannsóknina eftir vísindamenn 
Cambridge háskóla á Englandi birtist í hinu virta vísindariti New England Journal of Medicine. Vísindamennirnir leggja áherzlu á að rannsóknin, sem staðið hefur í 3 ár, sé engu að síður á frumstigi.

Lyfið, sem um ræðir, heitir alemtuzumab og virðist stöðva framgang sjúkdómsins í  nýgreindum sjúklingum, sem fá MS köst, batnar, en fá svo ný köst, því sem mætti kalla hringrásareinkenni, sem reyndar er algengasta birtingarform MS. Vísindamennirnir sögðu, að niðurstöðurnar bentu þannig til þess, að alemtuzumab geti valdið því að skaddaður heilavefur geri við sig sjálfur.

Í frétt BBC er haft eftir vísindamönnum að nýja lyfið sem var upphaflega þróað til að vinna gegn hvítblæði gæti reynzt öflugt vopn gegn “multiple sclerosis”. Lyfið er látið renna í æð  sjúklinga einu sinni á ári.

Vísindamennirnir vara við, að lyfið geti hugsanlega haft alvarlegar aukaverkanir. Á meðan á rannsókninni stóð lækkaði blóðflögutala 3% sjúklinganna, sem veldur því að þeim er hættara að fá slæmar blæðingar. Einn þátttakenda dó af völdum heilablæðingar (brain haemorrhage).

Í fréttum Sky sjónvarpsins í nótt var haft eftir vísindamönnunum, að nú séu sjúklingarnir undir góðu eftirliti og þeir telji auðvelt að hafa stjórn á vandanum.

Alemtuzumab – lyfjagerð sem er þekkt sem mótefni – var búið til á rannsóknarstofum Cambridge háskóla á áttunda áratugnum, og hefur um langa hríð verið notað við hvítblæði með því að drepa krabbasmitaðar hvítar blóðfrumur í ónæmiskerfi líkamans.

Rannsóknin sem hefur staðið í 3 ár með þátttöku 334 sjúklinga með versnunar-bötnunarform MS, sem ekki höfðu fengið meðferð, sýndi að lyfið fækkaði MS-köstum með 74% betra árangri en náðst hefur með hefðbundinni interferon-beta meðferð. Þá sýndu rannsóknir einnig að alemtuzumab minnkaði hættuna á uppsafnaðri fötlun um 71% samanborið við beta-interferon.

Einnig komu fram dæmi um sjúklinga sem hafa tekið þátt í rannsókninni í 3 ár, sem fóru að endurheimta líkamsgetu, sem talið var að væri með öllu glötuð. Þannig minnkaði fötlun sumra sjúklinganna frá því sem hún var í byrjan tilraunarinnar.

Brezka MS félagið segir kostina við nýju lyfjameðferðina vega fyllilega á móti áhættunni.

Dr. Lee Dunster, yfirmaður rannsókna hjá brezka MS félaginu segir í viðtali við Sky sjónvarpsstöðina: “Að hafa lyf sem lækkar kastatíðni, minnkar áhættuna á framvindu sjúkdómsins og vindur ofan af fötlun verður mesta, einstaka framþróunin gegn MS köstum á frumstigi, sem fram hefur komið til þessa.”

Forystumaður rannsóknarhópsins, Alastair Compston, prófessor, segir:

Alemtuzumab er það tilraunalyf sem gefur okkur besta von um árangursríka meðferð við multiple sclerosis og við gerum okkur góðar vonir um að þriðja fasa tilraunir (lokatilraun) eigi eftir að staðfesta, að lyfið geti bæði stöðvað framgang og kallað fram bata á því, sem áður var talið óafturkræft.”

Nú fara fram frekari rannsóknir. Ef lyfið heldur áfram að lofa góðu er hugsanlegt að klínísk notkun þess gæti hafizt innan fjögurra ára.

Horfið á frétt SKY sjónvarpsstöðvarinnar um tilraunalyfið. 
-h 

 

Af vef MS félagsins 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Gefur góða von

Hulda Margrét Traustadóttir, 31.10.2008 kl. 06:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband