Detox dagur í dag

Þá er fyrsti detox dagurinn síðan ég kom frá Póllandi.  Við hittumst á Grænum Kosti og fengum okkur grænt og gott í hádeginu.  Held mig svo við safa í dag og kannski einn ávöxt í kvöldmatinn.  Ég finn að líkaminn er alveg með á nótunum og hreinsikerfið komið í gírinn.  Ég las eitt sinn heilræði á læknastofu hjá ágætum lækni, það hljóðar svona og nokkuð til í því.
"Ef þú hefur ekki tíma fyrir heilsuna í dag þá hefur þú ekki heilsu fyrir tímann á morgun."

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

.... ég er í vondum málum.... En myndin þín sem Kristín systir sendi mér er samt að virka.

Herdís Sigurjónsdóttir, 18.10.2007 kl. 16:30

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Það er nú gott.  Ég var að fá hana senda að norðan í gær.  Hún er svo stór að ég kom henni ekki í bílinn af námskeiðinu.  Hún heitir "HAUST" .  Var send með Trailer í gær og fékk að vera í koju alla leiðina suður ásamt mynd eftir Guðrúnu tengdadóttur mína sem var á sama námskeiði og ég. 

Vilborg Traustadóttir, 18.10.2007 kl. 21:44

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Aldeils að þetta hefur virkað fínt hjá þér.  Frábært heilræðið sem þú birtir hér að framan.  Varstu búin að kvitta á listann hjá mér? nú er ég farin að rugla aðeins þetta er orðið svo mikið umfang. 

http://www.petitiononline.com/lidsauki/  ef þú vilt benda fleirum á. Kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 18.10.2007 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband