Húmar að kveldi

Enn einn dagurinn að renna sitt skeið í þessari heilsudvöl okkar systra hér á U Zbója í Póllandi.  Dagurinn hófst með þrumum og eldingum.  Veðrið lagaðist þegar á daginn leið og varð bara þokkalegasta veður með sól seinnipartinn.

Ég fór í andlitshreinsun í morgunsárið meðan systir skeiðaði hring í þrumuveðrinu.  

Ég tók góðan göngutúr í skóginum og fór auðvitað "dýrahringinn". Hér eru nefnilega svo skemmtileg dýr rétt hjá í girðingu.  Það eru kindur, kanínur og bambar.  Svo eru auðvitað hænur eins og vera ber og hani sem galar. Ég gala bara á móti og þá galar hann enn meira.

Kisinn á staðnum er farin að gera sig heimakomin og eltir okkur jafnan heim. Hann þáði vatn hjá okkur í dag blessaður eftir að hafa legið með okkur í sólbaði hér úti á flötinni við sundlaugina.

Fór í nudd í kvöld og þvílík heilsubót.  

Eigið góða nótt.  Kissing  Halo

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband