Hálfskýjað á UZbója

Hér hefur verið sól og blíða í morgun í bland við ský.  Við náðum klukkutíma sólbaði á grasflötinni hér fyrir framan íbúðina okkar í morgun.

Heilsan er höfð í fyrirrúmi og erum við á hraðri leið í sund seinni partinn og síðan er nudd og gufubað í kvöld.

Dr Boryz knúsaði mig í morgunmatnum í morgun og ég spurði hann ráða í sambandi við candita svepp sem ég þjáist af og dr. Borys mun meðhöndla það sérstaklega á föstudaginn.

Það er eitthvað hvítlauksdæmi sem hann mun fara með mér í gegn um. 

Spennandi verkefni og ég hlakka til að takast á við það. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband