Árshátíð?

Ef Seðlabankinn er með ársátíð núna þá sýnir það bara svart á hvítu hve gersamlega veruleikafirrtir menn eru!

Ég vona að þetta sé ekki tilfellið því ef þetta er satt þá er staðan á þeim bæ verri en ég hélt.

Seðlabankinn ætti frekar að gefa mæðrastyrksnefnd andvirði árshátíðar.

 

 


mbl.is Seðlabankanum mótmælt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heidi Strand

Þeir hafa fengið nóg af peningum til að halda ársháðið á einn dýrasta stað bæjarins.
Vonandi er þetta bara kveðjuhóf.

Heidi Strand, 24.1.2009 kl. 23:35

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Árshátíð? Til að halda upp á hvað?

Guðmundur Ásgeirsson, 24.1.2009 kl. 23:39

3 identicon

Er fólk orðið gjörsamlega veruleikafirrt? Hafið þið aldrei unnið hjá fyrirtæki? Starfsfólk borgar í starfsmannafélagið sem sér svo um árshátíð. Ætli það fólk sem vinnur þarna eigi ekki alveg skilið að lyfta sér upp, enda væntanlega búið að borga sjálft fyrir það. Hvernig væri að fara að nota hausinn aðeins þó menn séu í mótmælagírnum?

Stoner (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 00:52

4 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Þó fólk borgi í starfsnannasjóð greiðir fyrirtækið yfirleitt alltaf á móti.

Það eitt að halda árshátíð á þessum tímum sýnir hroka og hugsunarhátt sem virðist því miður vera orðinn rótfastur í stjórnkerfi landsins.

Ég um mig frá mér til mín.

Vilborg Traustadóttir, 25.1.2009 kl. 10:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband