Reykurinn sest?

Geir H. Haarde segir í fyrirsögn drottningarviðtals sem ég nennti ekki að lesa  í Morgunblaðinu í dag að hann muni öðlast yfirsýn þegar reykurinn sest!

Ég segi við Geir H. Haarde ef hann vill að það verði tekið mark á Íslandi á alþjóðavettvangi framvegis þá á hann að segja af sér ásamt Seðlabankastjórum, forstjóra Fjármálaeftirlits og Stjórnarformanns þar og þeim ráðherrum sem málið heyrir undir á einhvern hátt.

Það er greinilega alger "pattstaða" í málinu þar sem Jón Sigurðsson er Ingibjargar maður og Davíð Oddsson Geirs maður o.s.frv.

Við erum þokkalega orðin að athlægi Íslendingar góðir.

Það mun enginn heilvita maður taka mark á okkur næstu mannsaldrana.

Við verðum að bera þetta fólk út og hreinsa til sjálf.

Það er greinilegt! 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurveig Eysteins

 Sammála þér Vilborg, burt með þetta lið, og svo er það nýjasti brandarinn " Nýrrrrrr Framsóknarflokkur"  og það byrjar ekki vel  geta ekki lagt saman 2. og 2. Ætli verði stofnaður nýrrrr Sjálfstæðisflokkur á flokksþinginu eftir viku ?????

Sigurveig Eysteins, 19.1.2009 kl. 18:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband